|
|
30.01.2007 11:18:38 / þöll
»
06.01.2006 16:11:49 / þöll
Þessari síðu hefur verið lokað vegna skorts á bloggi.....
!!!!
»
16.04.2005 00:11:50 / þöll
ummm.. ég finn ylminn af sumrinu og sumarfríinu mínu, djöfull
sem ég hlakka nú til að þegar að skólinn er búinn, vá hvað það
verður nú notalegt 
Vitið þið hvað...?? ég ætla að verða djeims bónd þegar að ég
verð stór... jebbs, ég hef hæfileika í það, sjáið bara myndina hér
fyrir neðan, nei bara smá kidd hey fólk, pælið í því hvað
tímarnir eru búnir að breytast geggjað mikið, segjum að
vinur/vinkona manns myndi koma út úr skápnum, þá myndi maður vera
bara geggjað chillaður, bara já okey þú ert sem sé samkynhneigð/ur
okey kúl, gott mál..... Hvað hefði maður gert fyrir svona 20 árum,
maður hefði bara ó mæ gat, hann/hún er samkynhneigð/ur, ég verð að
hætta að tala við manneskjuna, ætli það sé óhætt að snerta
hann/hana og svo framveigis... pæli því ha (fyrsta pælingin mín
á bloggi) 

Duruduru duru......
James Bond / out 
»
14.04.2005 15:39:42 / þöll
Góðann og blessaðann daginn, ég er mjög hress fyrir utan
helvítis hálbólguna og kvefið sem er búið að vera að hrella mig
síðastliðnu daga!! Stefnan er að fara á Akureyri á laugardaginn,
dúlla sér þar í góðum félagsskap og skella sér svo um kvöldið á
söngvakeppni framhaldsskólanna, já eins og flestir vita þá fara
Sandra Dögg, Binni og Vivian með atriði fyrir hönd FNV, og það er
alveg fanta flott hjá þeim og spái ég þeim í gott sæti Stefnan
var nú að fara norður til að djamm feitt, fara í bíó, sund og
skemmta sér, en svo fór það einhvernveiginn allt í vaskinn og
Ingibjörg hætti alveg við að fara, sem er mjög slæmt, en þetta fer
bara eins og það fer 
Ég mæli með því að fólk fari í bíó á sunnudaginn!! Þessi mynd er
bara fyndin sko, allavega ef maður er í góðu skapi...!!!

Hihihi smá pós við flottann bíl 
Mig langar í hund, vill einhver gefa mér hund?? Sko hann verður
að vera veiðihundur, hann verður að vera sætur, hann verður að vera
hvolpur... okey ég er bara eitthvað að bulla, ojj ég nenni ekki í
sögu, en hvað gerir maður ekki fyrir Helga Hannesar NEI BARA
DJÓK.... ég er hætt þessu rugli í bili ble ble
(það er víst eitthvað í tísku að skrifa nafnið sitt svona) llöÞ
rudlihnyrB 
»
11.04.2005 16:52:06 / þöll
Já eins og þið sáuð þá bloggaði ég síðast á laugardegi og beið
með óþreiju eftir símtali frá stelpunum, og auðvita endaði það með
því að ég hringdi í þær, en það var allt í lagi með það.... já ég
skellti mér sko í dúndrandi party hjá Guðrúnu um kveldið og það var
sko bara snilld... verð að segja ykkur eina sögu, sem var bara ógeð
fyndið, við vorum að labba heim til Ingibjargar og vorum að taka
myndir á leiðinni bara svona smá flipp, svo þegar að við komum að
húsinu hennar ingu þá sé ég dráttarvél sem nágranni hennar á, ég fæ
kast hleip upp að dráttarvélinni og kem mér í pós stellingu Að
því loknu hleipur Ingibjörg að bílnum sínum og byrjar að flippa
eitthvað.... nei, nei kemur þá ekki þessi kolbrjálaði nágranni
hennar og fer að skamma okkur, og hótar að taka myndavélina... svo
segir hann að það sé bannað að taka myndir á nóttunni og hvar
stendur það svosem, spyr ég nú bara...!! Svo vil ég vísa á
skemmtilega sögu sem varð til í þessu ágæta party en hún er á
síðunni hennar Ingibjargar..!!! Sniðugt, sniðugt
og þið getið skoðað myndir frá þessu magnaða kvöldi
á www.picturetrail.com/thurmanmurman
vvíííí  
Ég sé
það nú bara á kommentunum í síðasta bloggi, að það er enginn á
leiðinni á söngvakeppnina á Akureyri, hvurslags eiginlega er þetta

xxxxx-daman, gaman saman 
bless í bili.... 
»
09.04.2005 17:32:24 / þöll
Góðann dag, góðann dag, glens og grín það er mitt fag, hopp og
hí trallalí uppá nefið nú ég sný.....
Já maður hefur nú heyrt fleiri útgáfur af þessu lagi , ég fer nú
samt ekkert nánar út í það hér .
Hummm hvað er nú búið að gerast síðan síðast, látum okkur nú
sjá, já þarna kom það Ingibjörg er búin að kaupa sér bíl, já ég
held að stúlkan hafi verið að græða mjög mikið á að kaupa þennan
kagga, ég segi bara gangi þér vel með bílinn elskan mín og svo
veistu að ég verð ávallt þinn sjottgönn  
ojjj ég er komin með svo mikið ógeð á skólanum að það er bara
ekki eðlilegt, það er alltaf ógeð mikið að læra heima, en samt
nenni ég því ekki, ég skil ekkert hvað er að gerast með mig
eiginlega, ég er orðin Trassi dauðans....!!
Já svo er nú bara vika í hina miklu söngvakeppni
framhaldsskólanna, og ég var að spá hvort að fólk ætli ekki að
skella sér bara, er það ekki málið? Fara á Akureyri yfir helgina,
tónleikar með Kvarasí, söngvakeppni, ball og fl. Réttupp hönd sem
ætla fara..!!
jæja gott fólk ég er að hugsa um að fara að læra, matarboð hjá
mér í kvöld og svo er ég vonast eftir því að ákveðnar manneskjur
fari að hringja í mig og bjóða manni í party, ha á ekkert að fara
að láta heyra í sér eða hvað??
Túrúlú, Brynhildur segja bless bless 
»
03.04.2005 12:54:44 / þöll
Gleði, gleði, gleðiiii, gleði líf mitt eeeer...... 
Þetta var sniðug vika mar byrjaði í skólanum á miðvikudaginn
og bara ohhh nú þarf ég að fara að læra á fullu og eitthvað rugl,
og ég var sko ekki að nenna því, neinei kemur þá ekki bara mín
yndislega móðir með þær dásamlegu fréttir að hún sé að fara til
Reykjavíkur á fimmtudaginn og ætli að koma aftur heim á
föstudaginn, og auðvita skellti ég mér með henni, og þar af
leiðandi fékk ég frí á fimmtudaginn (fór í einn tíma) og frí á
föstudaginn, ohhh hvílíkur lúksus...!! Á suðurlandinu keypti ég mér
peysu, tvo boli, tvö belti, gallabuxur og bara gaman gaman, svo
gerðust nú bara undur og stórmerki sem hafa ekki gerst í mörg ár, á
meðan að ég var stödd í Reykjavík var sólskin allann tímann, vá það
var skrítið... Eiginlega alltaf þegar að ég er í Reykjavík þá er
rigning eða eitthvað svoleiðis, boring.... Síðan bjallaði ég í
hana Sólveigu Rögnu og það var sniðugt, því stúlkukindin er komin
með bílpróf, já og haldiði ekki að ég hafi bara skellt mér á
rúntinn með kellu, HUGRÖKK já það myndi ég nú segja að ég hafi
verið En þetta var bara GAMAN og sniðugt, ég segi ekkert meira
frá þessum rúnti í smáatriðum heheh lovja Sólveig 
En nú byrjar ballið, nú þarf maður að byrja að læra já og læra
og læra og læra..... Ég er að hugsa um að skella mér bara í sund
með minni áskæru systur og hressa aðeins uppá mitt morgunklessta
andlit svo ég geti byrjað að vinna í ritgerðinni í íslensku
jamm frekar boring svona en allavega
æ sí jú beibí........
FÓLK ÞIÐ VERÐIÐ AÐ FYRIRGEFA HVERNIG ÁSTANDIÐ ER Á SÍÐUNNI MEÐAL
ANNARS INNÍ VINUM, ÞETTA BLOG.CENTRAL.IS ER GREINILEGA EITTHVAÐ
BILAÐ, ÉG GET EKKI SETT INN NEINAR MYNDIR EÐA NEITT SVO
SÝNIÐ ÞOLINMÆÐI... 
Brynhildur / out
»
29.03.2005 20:21:15 / þöll
Góðann og blessaðann daginn 
í dag mun vera þriðjudagur og þessi dagur er síðasti
páskafrísdagurinn já það er fúlt, samt er þetta páskafrí búið að
vera alger snilld og nú styttist óðum í sumarfrí, ohhh hvað
það verður nú notalegt 
Um síðustu helgi skellti ég mér nú á Skímó ball eins og ég var
nú búin að upplýsa ykkur um En þar var svo GAMAN shitt, það var
akkurat passlega mikið af fólki, þannig að maður hafði nú sitt
pláss á dansgólfinu, svo var hljómsveitin bara allgóð skal ég ykkur
segja og svo dönsuðum við Ingibjörg og Guðrún ALLANN tímann djöfull
var þetta snilldar ball Myndir frá ballinu getið þið skoðað á
myndasíðunni hennar Ingu: Nei bara djók... INGIBJÖRG Á ENGA
MYNDASÍÐU enn þið getið náttúrulega skoðað myndir á djamm.net já
það er gaman af þessu öllu saman.....
Já maður ætti nú kannski að fara að kíkja í bók svona áður en
maður fer í skólann á morgun, ég var nú búin að plana það að vera
geggjað dugleg og læra vel í páskafríinu mínu, en einhvernveginn
fór það allt út um gluggann í þessu góða veðri, svo það er kannski
kominn tími til að opna bók, skóli í fyrramálið CRAZY
Lifið nú lífinu börnin góð, nóttin er ung  
Brynhildur / out
»
26.03.2005 01:15:58 / þöll
Afsakið kæru lesendur, ég hef ekki verið mjög dugleg að blogga núna
í páskafríinu, já það er einfaldlega út af því að ég er að njóta
þess til fulls að vera í fríi í þessu góða veðri...!! en nóg með
það hér er blogg: Ballið á miðvikudaginn var alveg hreint ágætt 
Reyndar var alveg gersamlega stappað í Miðgarði þetta kvöld og
maður rétt náði að dilla sér þarna á dansgólfinu... þ.e.a.s. ef að
maður var nógu frekur  Nú er samt föstudagurinn langi og maður er
bara farinn að bíða eftir morgundeginum því þá tekur maður nú
líklegast ballskóna af hillunni pússar þá til og skellir sér á
tjúttið again  inte sant ??????? En vitir menn ég hef ekki hugmynd
um hvað ég á að segja meira, það hefur bókstaflega ekkert gerst hjá
mér, nema það að ég er búin að sofa mikið  svo er maður bara
búinn að fara í gönguferð með fjölskyldunni, liggja í makindum
sínum í heitapottinum út í garði  og svoleiðis stuff...!! En nú
er ég hætt þessari eindæmis vittleysu og bulli og segi bara lengi
lifi sveitaböllin í Skagafirðinum
»
21.03.2005 21:40:05 / þöll
Já það er greinilegt að allir eru að
fara á papaball úúú gaman gaman, ég hef tekið ákvörðun og
ætla að fara á bæði böllin 
Btw. ÞÚ ERT FRÁBÆR...!!!
og strumpar dagsins
eru...

Ingibjörg og Brynhildur 
»
15.03.2005 16:49:41 / þöll
»
07.03.2005 15:39:57 / þöll
Halló halló...... Ég er í geggjað góðu skapi miðað við það að
það sé mánudagur...!! Vá ég var að fatta það að ég dýrka sunnudaga,
jebbs það er rétt, það eru geggjað margir sem þola ekki sunnudaga
en ég hreynlega dýrka þá, tökum sunnudaginn í gær sem dæmi: svaf
til ellefu, kúrði fyrir framan sjónvarpið fram að hádegi, fór niður
og fékk mér gott í svanginn, skrapp rúnt í sveitina með bróður
mínum, lærði smá þegar að ég kom heim, fór svo að horfa á Ronju
ræningjadóttur , borðaði vöfflur sem mamma bakaði, rúntaði smá og
vá okey þetta er boring fyrir lesendur en þetta var samt geggjað
CÓZÝ dagur...!!
Nú er stefnan að fara til Ísafjarðar í vikunni, held á
fimmtudaginn, að keppa í körfu.... Svo verður líklega brunað heim
og haldið á árshátíð, voða stuð í þessu öllu saman ...
Ég skil nú samt ekki alveg, það eru svo margir sem að ætla ekkert á
árshátíðina, hvernig er það eiginlega er
enginn stemmari fyrir árhátíð eða hvað....??
»
27.02.2005 23:26:07 / þöll
jamm komið þið nú heilir og sælir lesendur
góðir 
Nú er þessari blessaðiri prófaviku loksins lokið mikið var
segi ég nú bara, ég er búin að fá útúr þremur prófum og er bara
svona nokkuð sátt... ein sjöa, ein átta og ein nía já já það er
ágætt bara... Þegar að ég var búin með síðasta prófið mitt á
föstudaginn sem var stærðfræði og mér gekk ekki vel í því, held það
allavega en allavega þá fór ég nú bara heim og naut lífsins,
skellti mér svo á fótboltaæfingu og lauk svo deginum heima hjá Örnu
í voða cozý idolpartý Svo í gær svaf ég vel og lengi, keppti svo
við Hamar/Selfoss í körfunni klukkan fjögur og aldrei þessu vant
unnum við nee segi svona bara En satt að segja tókum við þær
bara í bakaríið þrátt fyrir fáa stuðningsmenn  Svo er þessi
Sunnudagur bara búinn að vera dúllerí, tók herbergið mitt í gegn,
át fullt, fullt af nammi, horfði á dvd og skellti mér á leikinn,
sem btw. var ömurlegur, það var samasem engin barátta í strákunum,
og ég held að þeir ættu að taka okkur stelpurnar til fyrirmyndar
 En nú byrjar bara ný venjuleg vika og maður er bara farin að
fá sting í magann því böllin nálgast óðum, ef þið vitið það ekki
fólk þá eru tvö böll í einni viku 23. mars ball í Miðgarði með Von
og PÖPUNUM og svo 26. mars ball í Miðgarði með SKÍMÓ.... óóóóóó
jááá þá verður sko djammað feitt   Og í tilefni af
því að ég sé komin í þennan allmikla djammfíling mun koma hér ein
mynd af alvöru djammarastrump

Brynhildur / out
»
26.02.2005 00:42:56 / þöll
Fólk, það er allt í lagi að vera með
fíflalæti, ef það fer ekki út í sprell..!! Slíka hugsun skulu
menn líka hafa í huga þegar drykkja er annars vegar,
EKKI KEYRA UNDIR ÁHRIFUM
ÁFENGIS... Umferðin snýst um
líf...!!!
I went to a party mom,
and remembered what you said.
You told me not to drink, Mom
so I had a sprite instead.
I felt proud of mysel mom,
The way you said I would,
I didn't drink and drive mom,
Though all the others said I should.
I made a healthy choice mom,
And your advice to me was right,
The party finally ended mom,
And the kids drove out of sight.
I got into my car mom,
Sure to get home in one piece,
I never knew what was coming,Mom
Something I expected least.Now I'm lying on the pavement mom,
and I hear the policeman say,
The kid that caused this wreck was drunk mom,
His voice seems far away.
My own blood's all around me mom,
As I try hard not to cry.
I can hear the paramedic say mom,
This girl is going to die.
I'm sure the guy had no idea mom,
While he was flying high,
Because he chose to drink and drive mom,
Now I would have to die
So why do people do it, Mom
knowing that it ruins lives?
And now the pain is cutting me mom,
Like a hundred stabbing knives.
Tell sister not to be afraid, Mom
Tell daddy to be brave,
and when I go to heaven mom,
Put Daddy's Girl On my grave.
Someone should have taught him mom,
That its wrong to drink and drive.
Maybe if his parents had mom,
I'd still be alive.
My breath is getting shorter, Mom
I'm getting really scared. and I'm so unprepared. As I
lie here and die.
I wish that I could say, "I love you,Mom!"
I wish that you could hold me Mom,
These are my final moments mom,
So I love you and goodbye.
Ég tók mér það bessaleyfi að fá þetta
ljóð lánað hjá Örnu, af síðunni hennar, og þar er líka fullt af
öðru mjög fræðandi, kíkkið á það.
Brynhildur Þöll/out í von um þetta hafi áhrif á sumt
fólk...!!
»
22.02.2005 21:15:16 / þöll
Hæbbz.. ég er mjög hress
sko, örugglega allir vinir mínir búnir að vera veikir en
ekki ég hahah jamm eins og ég sagði þá líður mér
mjög vel, allavega miðað við það að maður sytur bara inni hjá
sér að "læra" í blíðunni... dem mig langar í pepsí..
Síðastliðinn föstudag skaust ég sem sagt suður á Laugarvatn, jamm
það var nú aldeilis ævintýra ferð, og hér kemur runan... Fyrst
hringir Helga og boðar sig veika og kemst ekki með, allir
liðsmenn urðu fyrir miklu sjokki við þessa fregn. Við
vorum nú samt aldeilis hressar þegar að við sáum að Júlli taxi ætti
að keyra okkur, ohh sweet dvd alla leið... við höfðum það mjög
notalegt og horfðum á friends... Þegar hér er komið við sögu erum
við komnar að Staðarskála, nei nei fattar hún Sigríður Inga þá ekki
að við gleymdum búningunum, obbobbobb hvað gera bændur þá.... jú
við hringdum í hana Dúfu (laugdæling) og athuguðum hvort þær ættu
ekki auka búninga til að léna okkur, jú Dúfa reddaði því enda
Sauðkrækingur í húð og hár (eða hvað sem maður segir nú) ... Allt
í lagi með það, þessu var reddað og við orðnar rólegar á ný... Nei
heyrðu stoppar Júlli þá ekki við Hreðavatnsskála, við urðum svoltið
hissa og sögðum: Nei nei Júlli við ætluðum að fá okkur að borða í
Borganesi ekki Hreðavatnsskála. Nei ástaðan var ekki sú, jú það var
sprungið á bílnum.. ohh þvílíkur dagur, við stúlkurnar ákváðum því
að fara inn á Stað elskendanna (hreðavatnsskála) og kaupa upp
lagerinn þar.. Þegar nýtt dekk var komið undir bílin og við
orðnar á eftir átælun var lagt í hann enn á ný.... Við komumst
slysalaust á Laugavatn en öll þessi áföll höfðu þau áhrif á okkur
að við töpuðum leiknum En svona er þetta bara, þá flýttum
við okkur í sturtu því nokkrar vildu óðara komast heim í
Skagafjörðinn og kíkja á sveita ball í Miðgarði, jú við gerðum
okkur fínar SETTUM Á OKKUR YLMVÖTN og svoleiðis.... neinei þegar að
við erum rétt lagðar af stað heim á leið keyrum við þá ekki á mink,
enn sú eindæmis vittleysa, Júlli stöðvaði bílinn svo þar af
leiðandi angaði allt af ÓGEÐSLEGRI lykt, ojjj minkurinn hafði
sprautað einhverju til að verja sig og það angaði svona
hrillilega.... við sem vorum komnar í ball fötin... Eftir þetta
minnir mig að allt hafi gengið vel á heimleiðinni 
já svo nenni ég ekki að segja neitt meira... ætla bara að tjekka
hvort það sé til pepsí... btw. enginn strumpur í
dag!!
Selastrumpur/out
»
Síður: 1 2 3 4
|
|